56% Íslendinga and­víg sölu bjórs í mat­vöru­versl­un­um

56% Íslendinga and­víg sölu bjórs í mat­vöru­versl­un­um

Um 32% Íslendinga eru hlynnt því að leyfa sölu léttvíns í matvöruverslunum en meirihluti, eða slétt 58% eru því andvíg. Andstaða við sölu léttvíns í matvöruverslunum hefur aukist frá því í byrjun febrúar 2016 þegar hátt í 35% voru því hlynnt og um 52% andvíg.

Þetta kemur fram í niður­stöðum könn­un­ar Maskínu sem gerð var dag­ana 21.-27. fe­brú­ar.

Lítið fleiri eru hlynntir sölu bjórs í matvöruverslunum, eða á bilinu 33%-34%, en meirihluti er einnig andvígur hér eða rúmlega 56%. Andstaðan hefur einnig aukist hér, því í byrjun febrúar 2016 voru rösklega á bilinu 37%-38% hlynnt sölu bjórs í matvöruverslunum og á milli 50%-51% andvíg.

Yfirgnæfandi meirihluti almennings er andvígur sölu sterks áfengis í matvöruverslunum eða hátt í 74% svarenda.

Nán­ar má lesa um niður­stöðurn­ar á heimasíðu Maskínu.

Sjá einnig

Meirihluti lesenda á móti áfengisfrumvarpinu


UMMÆLI

Sambíó