Aðgerðarhópur stofnaður vegna svifryksmengunar – Hálkuvarnir vega þungt í orsök svifryks

Aðgerðarhópur stofnaður vegna svifryksmengunar – Hálkuvarnir vega þungt í orsök svifryks

Styrkur svifryks hefur aukist töluvert undanfarið skv. mælingum hjá loftgæðamiðstöð Akureyrarbæjar og Umhverfisstofnunar. Undanfarna mánuði hefur styrkur svifryks farið nokkrum sinnum yfir hættumörk og veldur þá talsverðum óþægindum hjá börnum sem og fólki með ofnæmi og alvarlega hjarta- og lungnasjúkdóma.

Stofnaður hefur verið aðgerðarhópur með fulltrúum frá Akureyrarbæ, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni til að sporna við vaxandi svifryksmengun á Akureyri.

Ljóst er að mikil umferð á Akureyri er meginorsök svifryksmengunarinnar í bænum. Þá segir í tilkynningu frá Umhverfisstofnun að verklag við hálkuvarnir vegi þungt í orsök svifryks á Akureyri. Veturinn 2017-2018 var t.a.m. dreift tæplega 1100 tonnum af malarefni á götur bæjarins til hálkuvarna. Svifryksmengun er venjulega mest í nágrenni við miklar umferðargötur. Mengunin eykst mikið þegar vegyfirborð þornar að vetri til og götur eru rykugar eftir hálkuvarnir með malarefnum og gatnaslit af völdum nagladekkja. Sveiflur innan hvers dags fylgja álagstímum í umferðinni.

UMMÆLI