Akureyri áfangastaður númer eitt

Akureyri

Akureyrarbær varð í fyrsta sæti yfir áfangastaði til að sigla á hjá veftímaritinu Condé Nast Traveler. Í greininni er talað um 8 hafnir sem ekki margir vita um en væri spennandi að fara til. Þar er beint sjónum að Akureyri sem áfangastað þeirra sem vilja fara í siglingu árið 2018. Bent er á gífurlegan vöxt lágjaldaflugfélaga á suðvesturhornið, fjölda ferðamanna þar og tækifærinu sem felst í að heimsækja Akureyri nú.

Dregnar eru fram nokkrar áherslur svæðisins m.a. einn lengsti fjörður landsins, miðnætursólin, fjöldi viðburða, Jarðböðin við Mývatn og möguleikanum á að heimsækja Grímsey og heimskautsbauginn.

Skoða má greinina í heild sinni og þá átta staði sem valdir eru á síðu tímaritsins http://www.cntraveler.com

Sambíó

UMMÆLI