Akureyringar njóta sólarinnar í nýju myndbandi GRINGLO: „Maður finnur fyrir samheldni”

Akureyringar njóta sólarinnar í nýju myndbandi GRINGLO: „Maður finnur fyrir samheldni”

Hljómsveitin GRINGLO sendi í dag frá sér nýtt myndband við lagið Stranger. Myndbandið er tekið upp á sólríkum degi á Akureyri. Hugmyndin var einföld. Safna saman 60-70 manns, gera litla skrúðgöngu og búa til vinalegt andrúmsloft sem kemur boðskapi lagssins til skila.

Þetta var hugmynd sem ég var búinn að hafa í hausnum í dálítinn tíma. Ég labba svo oft þennan hluta af Ránargötu með Tuma hundinn minn, enda er þetta ein uppáhalds gatan mín á eyrinni. Mikið af fallegum gömlum húsum og falleg tré allstaðar,” segir Ivan Mendez söngvari sveitarinnar í samtali við Kaffið.is.

Hann segir stemninguna á tökudag hafa verið virkilega góða. Fólk hittist á Eiðsvelli þar sem hljómsveitin beið spennt með andlitsmálningu, confetti, sápukúlur, hljóðfæri og gasblöðrur.

Ivan segir að hundurinn hans, Tumi, hafi verið stærsti innblásturinn fyrir myndbandið.

Það er alls ekki óalgengt að fólk stoppi til að klappa honum og stundum er kominn hópur af krökkum í fylgd með manni sem vilja fá að skiptast á að halda í tauminn. Hann tekur öllum með opnu hjarta, hann hefur kennt mér margt.“

Sjá einnig: Fyrsta plata Gringlo komin út

Hann segir að allt hafi gengið eins og í sögu og fólk hafi verið afskaplega afslappað. Íbúar Ránargötu hafi verið mjög hjálpsamir og hafi tekið þátt í því að skapa líflegt andrúmsloft í götunni á meðan tökum stóð.

Það var gaman að sjá allt þetta fólk sameinast í garðinum. Fólk sem hefði kanski ekki leitt hesta sína sama ella en lét þó afskaplega vel af vinskap hvors annars. Mér leið eins og hugmyndin hefði komið heim og saman á því augnabliki, það var eitthvað mjög fallegt við þetta allt saman,” segir Ivan.

Myndbandið skartar þónokkrum kennileitum Akureyrarbæjar. Rauðum hjartalaga götuljósum, trjávöxnum smágötum, þekktum bæjarbúum, Eiðsvelli og bryggjusvæðinu.

Myndbandið er tekið upp og framleitt af tvíeykinu Bernódusi Óla Einarssyni og Sölva Karlssyni. Leikstýring var einnig í þeirra höndum. Listræn stjórnun og handritsgerð var í höndum Ivans. Lagið sjálft er hljóðritað af Sigfúsi Jónssyni en hljómblöndun og eftirvinnsla er unnin af Hauki Pálmasyni.

„Við töluðum um það strax í byrjun að okkur langaði að gera eitthvað jákvætt fyrir bæinn, fanga bæjarandann og sýna smá brot af bænum okkar. Hér er engin ókunnugur. Að sjálfsögðu þekkir maður ekki alla persónulega en maður finnur fyrir samheldni meðal bæjarbúa, og það eru gott að vera partur af slíku,” segir Ivan.

Horfðu á myndbandið

Hér má hlusta á plötuna From Source í heild sinni:

Sambíó

UMMÆLI