Andrea Mist kölluð inn í A-landsliðið

Andrea Mist 

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur gert tvær breytingar á hóp liðsins sem heldur til La Manga á fimmtudaginn og leikur þar við Noreg 23. janúar.

Elín Metta Jensen og Sigríður Lára Garðarsdóttir eru meiddar og í þeirra stað koma inn Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA, og Hlín Eiríksdóttir, Val.

Þetta er í fyrsta skipti sem Andrea Mist Pálsdóttir er kölluð inn í A-landsliðshópinn. Nú þegar eru í hópnum liðsfélagar hennar úr Þór/KA þær Sandra María Jessen og Anna Rakel Pétursdóttir.

 

UMMÆLI