Auknar áhyggjur af áfengis- og fíkniefnaneyslu ungmenna á AkureyriMynd tekin á forvarnarfundinum í gær. Mynd: Vma.is.

Auknar áhyggjur af áfengis- og fíkniefnaneyslu ungmenna á Akureyri

Fulltrúar framhaldsskólanna á Akureyri, fulltrúar Barnaverndar Akureyrarbæjar, lögreglustjóri, yfirlögregluþjónn, sviðsstjóri samfélagssviðs Akureyrarbæjar, áfengis- og fíkniefnaráðgjafi ásamt félagsmála- og forvarnarfulltrúa Rósenborgar funduðu í gær vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu ungmenna í framhaldsskólum á Akureyri.

Á fundinum komu fram áhyggjur fólks af stöðu mála hér á Akureyri. Raunin er sú í dag að ungmenni komast auðveldlega inn á skemmtistaði bæjarins þrátt fyrir að hafa ekki aldur til þess, æ fleiri sem ekki reykja sígarettur veipa og þá færist í vöxt að hassolía sé í veipvökvum. Fram komu áhyggjur af nemendum undir 18 ára aldri (lögaldri) í eftirlitslausum samkvæmum, bæði í foreldrahúsum og sölum sem þeir leigi til skemmtanahalds. Greint er frá þessu á heimasíðu Verkmenntaskólans á Akureyri.

Foreldrar á Akureyri verja skemmri tíma með börnum sínum en aðrir foreldrar á landinu 

Könnun meðal grunnskólabarna og foreldra á Akureyri leiðir í ljós að samvera unglinga og foreldra samkvæmt niðurstöðum „Ungt fólk“ hefur minnkað síðan 2016. Einnig bendir þessi könnun til þess að foreldrar á Akureyri verji skemmri tíma með börnum sínum en aðrir foreldrar á landinu. Á fundinum í gær kom mjög skýrt fram að foreldrar gegna lykilhlutverki í öllum forvörnum.

Stefnt er að frekari fundahöldum um þessi mál á næstunni í því skyni að allir taki höndum saman um að ná utan um þetta vandamál. Liður í því er fundur með foreldrum framhaldsskólanema sem verður boðað til fljótlega eftir áramót.


UMMÆLI