Baldvins Z undibýr íslenska sjónvarpsseríu um barnsrán í Suður-Ameríku

Baldvins Z undibýr íslenska sjónvarpsseríu um barnsrán í Suður-Ameríku

Kvikmyndagerðarmaðurinn Baldvin Z upplýsti það í útvarpsþættinum Ísland vaknar á K100 á dögunum að næsta verkefni hans væri ný íslensk 10 þátta sjónvarpssería. Tökur hefjast næsta vor og reiknað er með að þeir fari í sýningar eftir um tvö ár.

„Við erum að fara núna af stað með verkefni sem við köllum „The trip“ sem Síminn er að fara að sýna. Það er smá svona alþjóðabragur á þessu. Þetta verður tekið upp hér heima, í Puerto Rico og Ameríku líka,“ segir Baldvin en þættirnir fjalla um nokkra Íslendinga á ferðalagi í Puerto Rico þar sem tvíburum er rænt.

Baldvin hefur haft í nægu að snúast undanfarnar vikur en hann leikstýrir myndinni Lof mér að falla sem slegið hefur rækilega í gegn. Nú þegar hafa um 40.000 manns séð myndina í kvikmyndahúsum og ekki sér fyrir endan á velgengninni.

Viðtalið við Baldvin má heyra í heild sinni hér.

UMMÆLI

Sambíó