Bjarney Anna sendir frá sér nýtt lag

Akureyrska tónlistarkonan Bjarney Anna Jóhannesdóttir hefur sent frá sér nýtt lag undir listamannsnafninu Fnjósk. Lagið heitir Who are you? eða Hver ert þú? Bjarney hefur áður gefið út diskinn Rat Manicure undir listamannsnafninu Sockface.

Lagið Who are you? er fyrsta lagið sem gefið er út af væntanlegum, samnefndum hljómdiski frá Fnjósk. Lög, textar, söngur og stór hluti hljóðfæraleiks er í höndum hennar sjálfrar en hún nýtur einnig krafta frá öðrum hljóðfæraleikurum og tæknigúrúum á disknum.

Kristján Edelstein útsetti lögin í samvinnu við Fnjósk, Ragnar Ólafsson spilar á bassa og hljóðblöndun var í höndum Styrmis Haukssonar.

Útgáfan var fjármögnuð með hópsöfnun á Karolinafund. Stefnt er að útgáfu disksins á vormánuðum en hann mun innihalda lagið Who are you? ásamt sjö öðrum lögum.

 

UMMÆLI

Sambíó