Druslulist á Akureyri í dag

Í dag, fimmtudaginn 27.júlí, verður opnun á listasýningu í Flóru og Kaktus í tengslum við Druslugönguna sem fer fram á laugardag á Akureyri. Hér má finna Facebook síðu Druslugöngunnar á Akureyri.

Opnað verður í Flóru klukkan 17.00 en Flóra er í Hafnarstræti 93 og eftir hana verður farið í Kaktus, sem er í Hafnarstræti 73. Einnig verður sýning í glugga ART AK í Amaro húsinu. Listaverkin sem um ræðir eru eftir norðlenskar konur og boðið verður upp á léttar veitingar.

Sjá einnig:

Druslugangan á Akureyri aldrei stærri í sniðum

Sambíó

UMMÆLI