Fjárframlög til Aflsins lækka milli ára

Aflið, samtök um heimilis- og kynferðisofbeldi, fær minni framlög frá ríkinu fyrir árið 2018 en áður. Þetta kemur fram í frétt Vikudags. Framlög ríkisins til Aflsins hafa dregist saman um 30% á milli ára. Árið 2017 fékk Aflið 14,5 milljónir en í ár einungis 10 milljónir. Elín Björg Ragnarsdóttir, formaður Aflsins, segir í samtali við Vikudag að þetta skjóti skökku við.

„Við höfum verið að reyna að auka starfsemina og höfum notið stuðnings frá ríkinu og sveitarfélögum. En nú ber svo við að í allri umræðunni um #meetoo byltinguna og aukna áherslu á að hjálpa þolendum ofbeldis þá minnkar fjárframlagið,“ segir Elín.

Hún bendir á að Aflið hafi verið að færa starfsemina nær fólki og að skoðaðir hafi verið möguleikar á því að útvíkka starfseminar. Þau plön séu nú í uppnámi. Hún segir samtökin hafa kallað eftir auknu fjármagni frá sjórnvöldum.

„Það er bráðnauðsynlegt að gera lengri samning því það er mjög erfitt að reka svona starfsemi nánast dag frá degi og sjá aldrei lengra fram í tímann en eitt ár. En við bindum vonir við að fá góðan samning á næsta ári,“ segir Elín í samtali við Vikudag en nánari umfjöllun um málið má sjá á vef Vikudags.

Aflið eru samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis.

UMMÆLI

Sambíó