Fullveldið endurskoðað í Listasafni Akureyrar

Mynd: Snorri Ásmundsson: Snjallsímasjálfstæði / Smartphone sovereignty.

Laugardaginn 28. apríl kl. 15 verður opnuð samsýningin Fullveldið endurskoðað í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Um er að ræða útisýningu sem sett er upp á völdum stöðum í miðbæ Akureyrar. Alls eiga 10 ólíkir myndlistarmenn verk á sýningunni sem gerð eru sérstaklega í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands. Markmiðið er að sýna nýja hlið á stöðu fullveldisins á okkar tímum og fá áhorfendur til að velta fyrir sér hugmyndum, útfærslum og fjölbreyttum sjónarhornum því tengdu.

Listamennirnir eru: Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Gunnar Kr. Jónasson, Hrefna Harðardóttir, Jón Laxdal Halldórsson, Jónína Björg Helgadóttir, Karólína Baldvinsdóttir, Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Rebekka Kühnis, Samúel Jóhannsson og Snorri Ásmundsson.

Á sýningartímanum verður boðið upp á leiðsögn með listamönnunum þar sem gengið verður á milli verkanna og þau rædd. Sýningin hlaut styrk úr sjóði afmælisárs fullveldis Íslands.

Sýningarstjórar: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Hlynur Hallsson.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó