Gunnar Gíslason með flestar útstrikanir

Gunnar Gíslason. Mynd/ Vikudagur

Gunnar Gíslason oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri var með flestar útstrikanir í sveitastjornarkosningunum á laugaradaginn síðasta en alls strikuðu um 58 yfir nafn hans, þá strikuðu einnig 26 yfir nafn Þórhalls Jónssonar hjá Sjálfstæðisflokkinum en flokkurinn fékk langflestar útstrikanir eða samtals 121. Þá er vakin athygli á því að allir nema einn frambjóðandi á lista þeirra voru strikaðir út en það er ekki algengt samkvæmt yfirkjörstjórninni á Akureyri.

Samfylkingin var með samtals 70 útstrikanir en þar var oddviti þeirra, Hilda Jana Gísladóttir með 26 útstrikanir og Dagbjört Elín Pálsdóttir með 25 útstrikanir. Framsóknarflokkurinn var með samtals 26 útstrikanir en 14 þeirra voru yfir nafn Guðmundar Baldvins Guðmundssonar oddvita Framsóknarflokksins.

Einnig má nefna útstrikanir hjá L-listanum sem fengu 41 útstrikanir, 10 útstrikanir hjá Vinstri grænum og 6 útstrikanir hjá bæði Miðflokknum og Pírötum.


UMMÆLI