Hauststilla í Deiglunni – Frítt inn

Hauststilla í Deiglunni – Frítt inn

Hauststilla verður haldin annað árið í röð á morgun, fimmtudaginn 25. október í Deiglunni á Akureyri.
Mikil gróska er nú í norðlensku tónlistarlífi og hafa margir efnilegir listamenn gert vart við sig á undanförum misserum. Markmið hátíðarinnar er að gefa tónlistarfólki tækifæri á að koma fram og spila eigið efni. Lögð er áhersla á hlýja og þægilega stemmningu, lifandi hljóðfæraleik og síðast en ekki síst, frumsamda tónlist. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og allir velkomnir að koma og hlusta á þessa ungu og efnilegu listamenn.

Fram koma:
X Anton Líni
X Dana Ýr
X Diana Sus
X Einar Óli
X Flammeus
X GRINGLO
X Stefán Elí

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó