Prenthaus

Hulda Sif nýr aðstoðarmaður bæjarstjóra

Hulda Sif Hermannsdóttir. Mynd: akureyri.is

Hulda Sif Hermannsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra og leysir hún af hólmi Katrínu Björgu Ríkarðsdóttur sem tekur við starfi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.

Hulda Sif hefur starfað á Akureyrarstofu sem verkefnastjóri viðburða- og menningarmála frá árinu 2007. Hulda Sif er með BA próf í þýsku og nám í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Hulda hefur einnig starfað við mál tengd ferðaþjónustu og markað- og kynningarmála hjá Akureyrarstofu. Hulda Sif starfaði áður hjá RÚV við dagskrárgerð og fréttamennsku.

UMMÆLI

Sambíó