Kvensjúkdómalæknir gaf sjúkrahúsinu á Húsavík öll tækin sín

bensi-kysstur

Benedikt fékk kossa og blóm í þakklætisskyni. Mynd: 640.is

Benedikt Ó. Sveinsson læknir frá Víkingavatni afhenti á dögunum veglega gjöf til HSN á Húsavík. Benedikt sem var lengi vel sjálfstætt starfandi sérfræðingur í kvenlækningum hætti rekstri stofu sinnar í Reykjavík í lok síðasta árs. Hann ákvað að gefa öll þau tæki, búnað og tól sem tilheyrðu stofunni hans til HSN og munu þau leysa eldri tæki þar af hólmi.

Benedikt segist alltaf hafa haft taugar til svæðisins og hafi því haft samband við Ásgeir Böðvarsson, yfirlækni sjúkrasviðs HSN og spurt hvort hann mætti ekki senda tækin þangað. Benedikt starfaði við Sjúkrahúsið á Húsavík árin 1978-1980 og aftur um skamma stund árið 2006.

Við afhendinguna sagði Ásgeir að það væri ómetanlegt fyrir stofnunina að eiga slíka hauka í horni, hvort sem það væru styrktarfélög, góðmenni út í bæ eða stórmenni úr Kelduhverfinu.

Benedikt sagði í samtali við RÚV að honum fyndist táknrænt að gera þetta svona og honum fyndist eðlilegt að þau fengju að njóta afrakstursins af hans 25 ára vinnu hans í ljósi tauganna sem hann bæri til staðarins. Honum finnst gott að geta rifið þetta upp og gert sjúkrahúsið nútímalegt. Tækin munu nýtast kvensjúkdómalækni sjúkrahússins en einnig þvagfæraskurðlækni og við mæðravernd.

Sambíó

UMMÆLI