Prenthaus

Leikfélag Akureyrar 100 ára

Leikfélag Akureyrar 100 ára

Í ár fagnar Leikfélag Akureyrar þeim merka áfanga að verða hundrað ára. Af því tilefni verður gefin út saga leiklistar á Akureyri síðustu 25 ár. Sigurgeir Guðjónsson sagnfræðingur tekur upp þráðinn við ritun sögu félagsins þar sem bókin „ Saga leiklistar á Akureyri“ eftir Harald Sigurðsson lét staðar numið. Sú bók var gefin út í tilefni af 75 ára afmæli félagsins árið 1993.

Stjórn Leikfélags Akureyrar býður öllum þeim sem vilja óska afmælisbarninu heilla að fá nafn sitt á heillaóskarskrá þessa nýja rits. Nánari upplýsingar um það má finna á vefnum mak.is

UMMÆLI