Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir fósturverkefnum

Mynd og frétt af mak.is

Eitt af markmiðum LA er að rækta hæfileika ungs listafólks í frumsköpun í sviðslistum, að vera gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar rætast. Rödd ungs fólks er mikilvæg og skapa þarf tækifæri fyrir unga listamenn til að eiga stefnumót við áhorfendur. Við viljum að spurningum og rannsóknum borgaranna sé veittur skapandi vettvangur í leikhúsinu. Þessum markmiðum viljum við ná með Gróðurhúsi LA. Við auglýsum eftir verkefnum frá sviðslistafólki til að verða fósturverkefni Leikfélags Akureyrar.  Þau sviðslistaverkefni sem sem valin eru verða hluti af leikárinu 2018-2019.

Umsóknir þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði. Verkefnið verður að vera  frumsamið sviðslistaverkefni og umsækjendur eða efnistök hafi sterka tengingu við Norðurland. Umsækjendur verða að vera atvinnumenn í sviðslistum og auk  þess er listrænum stjórnendum falið að gæta umhverfissjónarmiða við sviðsetningu. Tillit skal tekið til vistspors og sóun á hráefnum skal vera í  lágmarki. Kynjahlutöll skulu vera sem jöfnust innan verkefnisins.  Þau verkefni sem veljast í Gróðurhús LA fá aðstoð við skipulagningu og verkefnastjórnun. Þau munu einnig fá aðstoð við gerð kynningarefnis og kynningu á verkefninu á vegum MAk í viðeigandi miðlum. MAK veitir sýningar og æfingaraðstöðu fyrir verkefnið í Samkomuhúsinu ásamt aðstoð frá miðasölu, framhúsi, tæknideildum og aðgang að tæknibúnaði og aðgang að leikmuna og búningasafni.

Það er okkar von að Gróðurhús LA verði til þess að búa frumsköpuðum sviðlistaverkefnum vettvang til þess að verða að veruleika og listamönnum að eiga stefnumót við áhorfendur.  Þannig styðjum við  sviðslistahópa og einstaklinga á svæðinu með því að gefa þeim tækifæri á að koma frumsköpun sinni á framfæri án þess að greiða aðstöðuleigu. Leikfélag Akureyrar stuðlar þannig að uppbyggingu öflugrar sviðslistarmenningar og ræktar samband sitt við grasrótarstarf. Opið er fyrir umsóknir til 31.október.

Hér má sækja um að vera hluti af Gróðurhúsi LA leikárið 2018-2019

UMMÆLI

Sambíó