Prenthaus

Lof mér að falla í þrjár vikur á toppnum

Lof mér að falla í þrjár vikur á toppnum

Eftir aðeins 17 daga í sýningu er Lof mér að falla orðin fjórða vinsælasta mynd ársins, situr sem fastast á toppi aðsóknarlistans sína þriðju helgi í röð og er orðin tekjuhæsta íslenska mynd ársins – 34,000 gestir hafa séð Lof mér að falla.Svo sannarlega frábær aðsókn hjá þessari mögnuðu mynd sem hefur vakið gríðarlega athygli og einróma lof gagnrýnenda og gesta – hér heima og erlendis.

Sjá einnig: Netflix sýnir Lof mér að falla áhuga – Verður sýnd um allan heim

Framundan hjá leikstjóra, aðalleikurum og framleiðendum er að fylgja myndinni eftir á kvikmyndahátíðina Busan í S-Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4.-13.október – þetta er Asíu frumsýning myndarinnar.

Sýnishorn myndarinnar:

Söguþráður myndarinnar:

Myndin segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

UMMÆLI