Málþing um opnun Miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Norður- og Austurlandi

Málþingið er haldið á Borgum, Háskólanum á Akureyri.

Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi, stendur fyrir málþingi um Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norður- og Austurlandi í anddyri Borga við Norðurslóð, Háskólanum á Akureyri, fimmtudaginn 26.apríl næstkomandi. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Dagskráin hefst kl. 16:oo og verður eftirfarandi:
Málþing sett.
 
Ársskýrsla Aflsins og starf samtakanna kynnt.

Sigrún Sigurðardóttir, doktor við Háskólann á Akureyri og Jokka G Birnudóttir, fræðslufulltrúi Aflsins:
„Öskrandi líkaminn og þöggun heilbrigðiskerfisins“.

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra:
„Mæta þörfum þolenda ofbeldis“

Hafdís Inga Hinriksdóttir, félagsráðgjafi og sérfræðingur Bjarkarhlíðar:
„Reynslan og starfið í Bjarkarhlíð“

Fulltrúar frá Zontaklúbbunum á Akureyri afhenda Aflinu afrakstur Hádegisfundar til styrktar Aflinu sem haldinn var 8. mars s.l.

Málþingi lokað.

UMMÆLI