Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis opnuð á AkureyriMynd af vefsíðu stjórnarráðsins.

Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis opnuð á Akureyri

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, hafa ákveðið að fjármagna rekstur nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri. Sambærileg þjónustumiðstöð, Bjarkarhlíð, er þegar starfrækt á höfuðborgarsvæðinu.

Þjónustumiðstöðin mun bjóða upp á samhæfða þjónustu og ráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga sem beittir hafa verið ofbeldi af einhverjum toga. Brotaþolum verður gefinn kostur á stuðningi og ráðgjöf í kjölfar ofbeldis, þeim að kostnaðarlausu. Stefnt er að því að þjónustumiðstöðin opni 1. mars næstkomandi. Þjónustumiðstöðin verður samstarfsvettvangur opinberra aðila og frjálsra félagasamtaka sem aðstoða þolendur ofbeldis.

Lögreglustjórinn á Akureyri hefur yfirumsjón með verkefninu en aðrir samstarfsaðilar eru Akureyrarkaupstaður, Aflið – samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, Háskólinn á Akureyri, Sjúkrahúsið á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Samtök um kvennaathvarf, Kvennaráðgjöfin og Mannréttindaskrifstofa Íslands.

Stuðningur við þjónustumiðstöðina er einn liður í aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem ráðherrar félags- og barnamála, dómsmála, heilbrigðismála og mennta- og menningarmála standa að og er til umfjöllunar á Alþingi.

Við undirskrift samstarfsyfirlýsingarinnar í dag þökkuðu ráðherrarnir frumkvæði lögreglustjórans á Norðurlandi og samstarfsaðila sem standa að stofnun þjónustumiðstöðvarinnar en hún er mikilvægur liður í að koma þolendum ofbeldis á Norður- og Austurlandi til aðstoðar og greiða leið þeirra að félagslegum og lagalegum úrræðum.

Þjónustumiðstöðin verður rekin sem tilraunaverkefni til tveggja ára og miðast fjárframlög ráðuneytanna við það. Hvort ráðuneyti leggur 12 milljónir króna til verkefnisins á tímabilinu svo heildarframlagið er samtals 24 milljónir króna.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó