Mikil svifryksmengun á Akureyri í dag

Mikil svifryksmengun á Akureyri í dag

Svifryk mælist hátt á Akureyri í dag og samkvæmt mælingum á vef Akureyrarbæjar eru loftgæði orðin það léleg að einstaklingar með enga sjúkdóma eða ofnæmi geti farið að finna fyrir óþægindum.

Á heimasíðu Akureyrarbæjar segir að svifryk mælist í 180 µg/m3 í dag en fari svifryk upp fyrir 100 µg/m3 eru loftgæði orðin mjög léleg og þá er mælst er til þess að einstaklingar með ofnæmi eða alvarlega hjarta- og lungnasjúkdóma haldi sig innan dyra. Fari það upp fyrir 150 µg/m3 fara aðrir einstaklingar að finna fyrir óþægindum.

Svifryk á Íslandi er aðalega afurð bæjarumferðar en svifryk er einfaldlega örsmáar agnir í andrúmsloftinu sem geta valdið óþægindum hjá fólki ef magnið verður mikið og loftgæði skerðast í kjölfarið. Á heimasíðu Akureyrarbæjar má finna daglegar mælingar sem skrá magn svifryks í andrúmsloftinu. Svifryk af stærðinni PM10 eru mæld við Strandgötuna á Akureyri.

Þess má geta að í gær var svifryk mjög lítið eða aðeins 4,08 µg/m3. Í dag er svifrykið hins vegar farið upp um tvo flokka úr lítið skertum loftgæðum yfir í slæm loftgæði.

Hægt er að fylgjast með mælingum svifryks á heimasíðu Akureyrarbæjar hér.

UMMÆLI