MIMRA gefur út tónlistarmyndband úr 3000 ljósmyndumAðalleikkona myndbandsins er hin 10 ára gamla Embla Steinvör Stefánsdóttir.

MIMRA gefur út tónlistarmyndband úr 3000 ljósmyndum

Tónlistarkonan MIMRA sendi frá sér myndband við lagið Sinking Island í gær, þriðjudaginn 17. júlí. Lagið er titillag samnefndrar plötu sem kom út seint á síðasta ári, en tónlist MIMRU má kalla alternative folk popp. Gerð myndbandsins var í höndum Andvara þar sem Guðný Rós Þórhallsdóttir sá um leikstjórn og þau Birta Rán Björgvinsdóttir og Arnór Einarsson sáu um upptökur. Aðalleikkona myndbandsins er hin 10 ára gamla Embla Steinvör Stefánsdóttir sem fer listavel með hlutverk stúlkunnar sem líður þar um mosavaxna skóga og tún.

3000 ljósmyndir á fimm mínútum 
Myndbandið er unnið gegnum stop motion tækni og er þar af leiðandi ekki unnið á hefðbundinn hátt heldur eingöngu úr ljósmyndum. Nánar til tekið 10 ramma á sekúndú og eru því 3000 ljósmyndir í myndbandinu sem telur rúmar 5 mínútur. Stílisti var Kristjbjörg Lára Gunnarsdóttir sem sá einnig um förðun. Sérstakar þakkir fá Ögmundur Þorgrímsson, Bergur Árnason og Nína Petersen sem aðstoðuðu við tökur og Þura Hauksdóttir hjá Spúútnik.

Hér má sjá myndbandið: 

MIMRA er listamannsheiti Maríu Magnúsdóttur. Platan, Sinking Island, er heildstætt verk út í gegn, orchestral popp á stórum skala þar sem MIMRA sá um upptökustjórn og hljóðhönnun. Platan er fáanleg á geisladisk og vinyl sem og gegnum allar helstu streymiveitur.
Platan Sinking Island kom út í fyrra og var vel tekið, platan er heildstætt verk út í gegn þar sem MIMRA sá um upptökustjórn og hljóðhönnun. Platan er fáanleg á geisladisk og vinyl sem og gegnum allar helstu streymiveitur. MIMRA hélt enn fremur ásamt hljómsveit í tónleikaferðalag sem bar nafnið MIMRA Roadtrip Tour um Ísland í júní síðastliðnum. Þá hélt bandið ellefu tónleika vítt og breytt um landið á þrettán dögum.

Sambíó

UMMÆLI