Mömmur og Möffins færðu fæðingardeild Sjúkrahússins peningagjöf

Alexander Smárason forstöðulæknir, Ingibjörg Jónsdóttir forstöðuljósmóðir, Valdís Jónsdóttir sem sá um skipulag á Mömmur og Möffins og sonur hennar Jón Friðrik. Mynd: Vikudagur.is

Á hverju ári halda góðgerðarsamtökin Mömmur og Möffins sölu í Lystigarðinum um Verslunarmannahelgina. Í byrjun september færðu samtökin fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri ágóðan af sölunni. Mömmur og Möffins færðu fæðingardeildinni samtal rúmlega 800 þúsund krónur.

„Við erum afar þakklát fyrir þessa höfðingjalegu gjöf og viljum þakka sérstaklega skipuleggjendum sem og öllum þeim sem lögðu verkefninu lið. Einnig viljum þakka öllu þeim sem versluðu möffins og lögðu þannig peninga til verkefnisins,“ segir Ingibjörg Hanna Jónsdóttir forstöðuljósmóðir í samtali við Vikudag.is.

Peningaupphæðin verður nýtt upp í kaup á hjartsláttarsírita sem nemur hjartslátt barns í móðurkviði og einnig hjartslátt móður.

UMMÆLI

Sambíó