Nætursalan lokar


Nætursölunni í miðbæ Akureyrar hefur verið lokað vegna rekstrarerfiðleika. En er ekki vitað hvort önnur starfsemi taki við í húsnæðinu en húsið er í eigu Akureyrarbæjar.

Nætursalan hefur verið hálfgerð samgöngumiðstöð þar sem strætóbílstjórar hafa haft aðstöðu í húsinu og munu hafa áfram, en fólk sem beðið hefur eftir strætó hefur gjarnan fengið að fara þangað inn. Á næturnar um helgar hefur sjoppan verið opin og mikið sótt á þeim tíma.

„Okkur finnst óþægilegt að geta ekki haft þetta opið fyrir fólk en við teystum okkur ekki að hafa þetta opið án vörslu því þarna safnast saman allskonar lið,“ segir Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar Akureyrar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó