Nokkur dæmi um mistök í rukkun við Vaðlaheiðargöng

Nokkur dæmi um mistök í rukkun við Vaðlaheiðargöng

Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir að nokkur dæmi séu um mistök við rukkun í Vaðlaheiðargöngunum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Áslaug Jónsdóttir, bókverkakona, segir í viðtali við Morgunblaðið að hún hafi verið rukkuð fyrir tvær ferðir í gegnum göngin þrátt fyrir að hafa bara farið einu sinni.

„Það var þarna snjór og slabb og tölv­an las vit­laus­an staf í bíl­núm­er­inu og taldi það mitt,“ seg­ir Áslaug.

Hún segir að fljótt og vel hafi verið brugðist við kvörtun hennar og rukkunin hafi verið felld niður.

„Þetta er ekki óþekkt vanda­mál í búnaði sem þess­um. Við erum með tvær mis­mun­andi vél­ar og ef þær lesa ekki sama núm­erið reyn­um við að bera sam­an og leysa úr því,“ seg­ir Valgeir Bergmann um málið í Morgunblaðinu.

UMMÆLI

Sambíó