Prenthaus

Nýr vefur Vistorku í loftið

Nýr vefur Vistorku í loftið

Vistorka hefur opnað nýja vefsíðu, www.vistorka.is, þar sem má finna mikið efni tengt umhverfis- og loftslagsmálum Akureyrarbæjar. Á vefnum eru fréttir, myndbönd, skýrslur og ýmiss fróðleikur um m.a. loftslagsbókhald, veitustarfssemi, orkuframleiðslu, úrgangsmál og rafbíla.

Vistorka var stofnuð í maí 2015 og er einkahlutafélag í 100 prósent eigu Norðurorku. Markmiðið með stofnun Vistorku er að stuðla að framleiðslu umhverfisvæns eldsneytis með sjálfbærri nýtingu hráefnis sem fellur til á Eyjafjarðarsvæðinu. Félagið kannar auk þess mögulega nýtingu á þeim hliðarafurðum sem framleiðslunni tengjast og með hvaða hætti nýting og samspil þeirra getur stutt við meginmarkmiðin.

Vistorka hefur einnig það hlutverk að hvetja og fræða íbúa, stofnanir og fyrirtæki um orkuskipti, sjálfbærni, loftslags- og umhverfismál í víðu samhengi.

UMMÆLI

Sambíó