Öldrunarheimili Akureyrar vilja fá vínveitingaleyfi

Hlíð er eitt af öldrunarheimilum Akureyrar.

Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar hefur nú sótt um vínveitingaleyfi fyrir stofnunina en fjölmörg önnur hjúkrunarheimil hafa verið að sækja um slík leyfi og aðlagað starfsemi sína til að ná hagræði í innkaupum og afgreiðslu.

Öldrunarheimilin hafa verið dugleg að halda kráarkvöld að jafnaði einu sinni í mánuði síðastliðin 10 ár auk hátíðarviðburða og þorrablóta og er það ein ástæða fyrir umsókninni.

Sambíó

UMMÆLI