Sigursælasti leikmaður SA frá upphafi heiðraður – Siggi Sig spilaði í 27 ár í meistaraflokkiSiggi Sig ásamt börnum sínum og frystu treyjunni. Mynd: Ásgrímur Ágústsson.

Sigursælasti leikmaður SA frá upphafi heiðraður – Siggi Sig spilaði í 27 ár í meistaraflokki

Sigursælasti leikmaður Skautafélags Akureyrar frá upphafi, Sigurður Sveinn Sigurðsson, var heiðraður af félaginu síðustu helgi. Nýr risaskjár í Skautahöllinni á Akureyri var vígður síðasta laugardag en vígslan var notuð sem tilefni fyrir heiðrunina og stal senunni í upphafi leiks SA Víkinga og SR í Hertz-deild karla. Þetta kemur fram í umfjöllun á heimasíðu Skautafélags Akureyrar. 

Lék 400 leiki í meistaraflokki og skoraði 292 mörk 

Siggi Sig lagði skautana á hilluna sl. vor en þá hafði hann æft og keppt í meistaraflokki samfleytt í 27 ár, eða frá árinu 1991 þegar Íslandsmótið hófst. Siggi hefur unnið 21 Íslandsmeistaratitil á ferli sínum, 19 þeirra með Skautafélagi Akureyrar og tvo með Skautafélagi Reykjavíkur. Siggi er einnig leikjahæsti, markahæsti og stigahæsti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi en hann lék 400 leiki í meistaraflokki, skoraði 292 mörk, gaf 280 stoðsendingar og var með 572 stig. Hann var í sigurliði SR sem vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1998 og það var því við hæfi að Skautafélag Reykjavíkur tók þátt í heiðruninni og ahentu honum gjöf frá félaginu. Siggi vann fleiri Íslandsmeistaratitla en nokkur annar leikmaður í félagsliði á Íslandi í meistaraflokki karla en minnisvarða um alla titla Skautafélagsins var komið fyrir í Skautahöllinni við sama tilefni.

Mynd frá leiknum og athöfninni síðustu helgi.

Treyjunúmer Sigga fryst hjá Skautafélagi Akureyrar

Við heiðrunina var fáni með númerinu 13, sem var treyjunúmerið hans Sigga, ásamt nafninu hans hengdur upp í Skautahöllinni til marks um ótrúlegan feril þessa afreksíþróttamanns. Treyjunúmerið hans er nú búið að frysta af félaginu sem þýðir að enginn leikmaður getur borið treyjunúmerið 13 í meistaraflokki karla héðan í frá. Börnin hans eru þó þau einu sem fá undantekningu á frystingunni en þau bera öll númerið hans í yngstu flokkum SA.

Glænýr risaskjár var vígður síðustu helgi.

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó