Stærsta gisti­heim­ili á Íslandi sem býður gist­ingu í svefn­hylkj­um

Mynd: Hafnarstræti Hostel á Facebook

Nýverið hóf Hafnarstræti Hostels starfsemi í Amaro húsinu. Um er að ræða farfuglaheimili þar sem gestir sofa í svokölluðum svefnhylkum að kínverskri gerð í stað venjulegra koja. Eigandi farfuglaheimilisins, Sandra Harðardóttir, segir í þessu felast ögn meira næði fyrir gesti, en hægt er að fá bæði ein- og tvíbreiða klefa,í samtali við Morgunblaðið.

Hylkin eru framleidd af kínverska fyrirtækinu Peng Heng, sem rekur gistiaðstöðu í Kína. Inn í þeim eru uppábúin rúm og loftræsting, rafmagnsinnstungur, heyrnatól og lýsing. Svipaður gististaður er í Reykjavík, Galaxy Pod Hostel á Laugavegi, einnig eru nokkur svefnhylki í Gistihúsinu Hamri í Vestmannneyjum.

Hafn­ar­stræti Hostel er þó stærsta gisti­heim­ili á Íslandi sem býður gist­ingu í svefn­hylkj­um og það fyrsta á Norðurlandi.

Í um­fjöll­un um gisti­stað þenn­an í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Sandra Harðardótt­ir, eig­andi hostels­ins, að sérstaða þess felist í næðinu. Að öðru leyti sé þar öll hefðbund­in þjón­usta far­fugla­heim­il­is, innifal­inn morg­un­verður, sam­eig­in­leg­ur mat­sal­ur, baðher­bergi og eld­hús. Á staðnum er svefnrými fyrir 84 gesti.

 

UMMÆLI