Styttist í Vísindaskóla unga fólksins

Vísindaskóli unga fólksins verður haldinn í fjórða skiptið dagana 18.-22. júní. Vísindaskólinn er ætlaður ungu fólki á aldrinum 11-13 ára og í fyrsta sinn er nú hægt að nýta tómstundaávísun við greiðslu skólagjalda.

Á hverju ári hefur verið boðið upp á ný þemu, sem gerir það að verkum að unga fólkið getur sótt skólann þrjú ár í röð og alltaf kynnst nýjum áherslum. Að þessu sinni eru yfirskriftir þemanna: MEÐ LÖGUM SKAL LAND BYGGJA, LÍFRÍKIÐ Í BÆNUM, SKAPANDI HUGSUN, VÍSINDI HEIMA Í ELDHÚSI OG ÚTI Á GÖTU, og FAB LAB SMIÐJA. Á bak við þessi heiti liggur fræðsla um hvernig lögreglan starfar, hvað lögreglumenn þurfa að kunna og í hverju þeir lenda í daglegu starfi. Nemendur rannsaka lífríkið á háskólasvæðinu og finna út úr því hve margar tegundir af plöntum, fléttum og dýrum eru á svæðinu. Þeir kynnast nýsköpun og finna út úr því hvernig hugmyndir verða að veruleika og svo munu þeir kynnast eðlis- og efnafræði eldhússins og búa til eigið tilraunaeldhús. Nemendur kynnast einnig FAB LAB Akureyri og læra á teikniforrit, hanna og skera út hluti í laserskurðarvél.

Reynsla fyrri ára hefur sýnt að strákar sýna þessum skóla ekki síður áhuga en stelpur á aldrinum 11-13 ára. Stór hópur þátttakenda hefur komið ár eftir ár í skólann og það erum bestu meðmælin sem við getum fengið“, segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins.

Skólinn byrjar kl. 9.00 á morgnana og stendur fram til kl. 15.00 og þátttakendur fá þá hádegismat í skólanum. Frekari upplýsingar má finna inn á heimasíðu Vísindaskólans www.visindaskoli.is.

Vísindi heima í eldhúsi og úti á götu er eitt af þemanu í Vísindaskólanum.

UMMÆLI

Sambíó