Prenthaus

Sverre aðstoðar KA út tímabilið

Sverre aðstoðar KA út tímabilið

Sverre Andreas Jakobsson er mættur aftur til KA þar sem hann mun aðstoða þá Stefán Árnason og Heimi Árnason við þjálfun handboltaliðs félagsins út tímabilið. Þetta kemur fram á vef KA í kvöld.

Í tilkynningu á vef KA, þar sem einnig má sjá myndband frá því Sverre spilaði með liðinu, segir:

Sverre er uppalinn í KA og varð með liðinu Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að verða Meistari Meistaranna. Síðar lék hann með Aftureldingu og HK auk þess að verða Íslandsmeistari með Fram. Þá fór hann út í atvinnumennsku þar sem hann lék með þýsku liðunum VfL Gummersbach og TV Grosswallstadt. Leikmannaferlinum lauk með sameiginlegu liði Akureyrar auk þess að hefja þjálfaraferil sinn með hinu sameiginlega liði.

Með íslenska landsliðinu lék hann alls 182 landsleiki þar sem hann lék lykilhlutverk í hjarta varnarinnar. Með landsliðinu vann meðal annars silfur á Ólympíuleikunum árið 2008 og brons á Evrópumeistaramótinu árið 2010.

Við viljum bjóða Sverre hjartanlega velkominn aftur í KA og hlökkum mjög að sjá til hans á hliðarlínunni.

UMMÆLI

Sambíó