Prenthaus

Þórsarar framleiða sérstaka HM-treyju: „Ekki á hverjum degi sem Þórsari leiðir lið á HM“

Í tilefni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi í sumar hefur knattspyrnudeild Þórs látið útbúa sérstaka HM-treyju. Hún er að sjálfsögðu númer 17 og merkt fyrirliða liðsins Aroni Gunnarssyni.

Treyjan fór í sölu í morgun á vefsíðunni 603.is og kemur í öllum stærðum. Óðinn Svan Óðinsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs er gríðarlega ánægður með útkomuna. „Við Þórsarar erum auðvitað stoltir af okkar manni og vildum gera eitthvað sérstakt. Það er ekki á hverjum degi sem Þórsari leiðir lið á HM,“ segir Óðinn í samtali við Kaffið.is

Eins og áður segir kemur treyjan í öllum stærðum og gerðum og er þeim sem hafa áhuga á að tryggja sér eintak bent á síðuna 603.is 

UMMÆLI

Sambíó