Þriðji bekkur matreiðslu í fyrsta skipti í VMA í haust

Mynd frá matreiðslunemum í 2.bekk VMA. Mynd: Ari Hallgrímsson, matreiðslumaður og kennari.

Á næstu önn, haustönn 2018, mun VMA í fyrsta skipti bjóða upp á nám í 3. bekk í matreiðslu, sem er lokaönn matreiðslunáms. Þetta eru merk tímamót hjá skólanum og um leið merk tímamót í menntun matreiðslumanna hér á landi því fram að þessu hefur síðasti bekkur matreiðslunámsins eingöngu verið í boði í Menntaskólanum í Kópavogi. Þessu er greint frá inn á heimasíðu Verkmenntaskólans.

VMA hefur lengi boðið upp á grunndeild matvæla- og ferðagreina, þar sem nemendur læra grunnatriði í bæði matreiðslu og framreiðslu. Námið er tvær annir að lokinni grunndeild ásamt starfssamningi á veitingastað. Þeir nemendur sem velja að fara í matreiðslu taka 2. bekk matreiðslu, sem skiptist í verklegt og bóklegt nám en boðið var upp á slíkt nám í VMA á haustönn 2016 og aftur núna á vorönn. Hins vegar hefur fram að þessu ekki verið unnt að bjóða upp á 3. bekk matreiðslunámsins í VMA fyrr en á komandi haustönn og nemendur því ævinlega þurft að sækja hann suður í Kópavog.

Marína Sigurgeirsdóttir, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segist fagna því mjög að VMA geti nú boðið upp á að fullnema matreiðslumenn. “Veitingafyrirtæki hér á svæðinu hafa lengi kallað eftir því að fullnema matreiðslumenn í VMA og því er þetta ekki síður ánægjulegt fyrir veitingageirann. Það hefur verið vöntun á menntuðu fólki í matreiðslu og því er afar mikilvægt að geta nú loksins stigið þetta skref,” segir Marína og bætir við að veitingageirinn á svæðinu hafi ávallt stutt vel við nám á matvælabraut VMA sem beri að þakka alveg sérstaklega.

Mynd: Ari Hallgrímsson, matreiðslumaður og kennari.

Miðað er við 10-12 nemendur í 3. bekk matreiðslu í VMA í haust. Til þess að komast í námið þurfa nemendur að vera komnir vel á veg á sínum námssamningum. Gert er ráð fyrir að nemendur fari í sveinspróf í matreiðslu í lok námstímans í 3. bekk. Vert er að undirstrika að námið, sem er annars vegar 9 einingar í bóklegum faggreinum og hins vegar 7 einingar í verklegum greinum, er opið nemendum af öllu landinu.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námið á vefsvæðinu menntagatt.is – merkt MA9 – og þurfa allar umsóknir að fara í gegnum þá vefgátt.

Sambíó

UMMÆLI