Vala Yates í Hofi í kvöld

Vala Yates

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 20.júlí, mun Vala Yates halda tónleika í Hofi en þeir eru hluti af Listasumri og fyrstir af 7 tónleikum sem Vala heldur á Norðurlandi í sumar.

Vala Yates er klassískt menntuð söngkona og tónskáld. Hún hefur tekið þátt í fjölda fjölbreyttra tónlistarviðburða, sem flytjandi jafnt sem höfundur – allt frá barrokk til nýklassíkur til popptónlistar – og má segja að tónlist hennar sé innblásin frá þessum ólíkum áttum. Hún hefur unnið með popptónlistarmönnum á borð við Barða Jóhanns, Keren Ann Zeidel og Ólafi Arnalds, en stígur nú í fyrsta sinn fram með sitt eigið verkefni. Dimitrios Theodoropoulos spilar með Völu á gítar.

Almennt miðaverð er 2.000 kr, afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja er 1.000 kr. Sjá nánar á Mak.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó