10 Bestu – Sverrir Ragnars

10 Bestu – Sverrir Ragnars

Sverrir Ragnarsson er gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjum þætti hlaðvarpsins 10 bestu sem tekið er upp í Podcast Stúdíói Akureyrar. Hlustaðu á þáttinn hér að neðan.

„Sverrir Ragnars fluttist til Bandaríkjanna fyrir 30 árum að læra ensku. Núna þjálfar hann framkvæmdarstjóra Microsoft og fleiri í að verða betri menn og yfirmenn. Hvernig komst hann þangað? Hann er Akureyringur í húð og hár og hann elskar bæinn sinn. Hann gæti vel flutt hingað aftur í komandi framtíð. Hann talar fallega um lífið, stelpurnar sínar tvær og er jákvæður svo í sólina skín. Hann er að gefa út sína fyrstu bók í haust og það er bara líflegt andrúmsloft í kringum þennan skemmtilega og góða dreng,“ segir Ásgeir um viðmælanda sinn.



Sambíó

UMMÆLI