12 manns gefa kost á sér í fimm efstu sæti VG í Norðaustur­kjördæmi

12 manns gefa kost á sér í fimm efstu sæti VG í Norðaustur­kjördæmi

12 manns gefa kost á sér í forvali um fimm efstu sætin, sem er rafrænt og verður haldið 13. – 15. febrúar 2021.  Á fundi kjörstjórnar með frambjóðendum í gærkvöld var ákveðið að halda þrjá málefnafundi með þeim sem eru í framboði.

Fundirnir verða allir fjarfundir á zoom og haldnir:

Laugardag 6. febrúar kl 11:00 

Miðvikudag 10 febrúar kl 20:00 

Laugardag 13. febrúar kl 11:00 

Þau 12 sem bjóða sig fram á lista VG í forvalinu eru: 

Angantýr Ásgeirsson, sálfræðinemi, Akureyri. 

Ásrún Ýr Gestsdóttir, nemi, Akureyri. 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Alþingismaður, Ólafsfirði, 1. sæti. 

Cecil Haraldsson, fyrrverandi sóknarprestur, Seyðisfirði, 4.-5. sæti. 

Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri. 

Helga Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi, Eyjafjarðarsveit. 

Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupsstað. 1 – 2 sæti. 

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri, 3. sæti. 

Jódís Skúladóttir, lögfræðingur, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Múlaþingi 2. sæti. 

Kári Gautason, framkvæmdastjóri í fæðingarorlofi, Reykjavík,  2. sæti. 

Óli Halldórsson, forstöðumaður, Húsavík, 1. sæti . 

Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson, bóndi, Þingeyjarsveit. 

UMMÆLI