Prenthaus

208 skemmtiferðaskip væntanleg til Akureyrar í sumarMynd: Hilmar Friðjónsson.

208 skemmtiferðaskip væntanleg til Akureyrar í sumar

Skemmtiferðaskip væntanleg til Akureyrar verða alls 208 talsins en síðasta sumar voru 179 skip. Þá voru farþegar rétt innan við 135.000 í fyrra en verða um 160.000 í sumar sem er um 18,5% fjölgun farþega. Skipakomur til Akureyrar verða 161, til Grímseyjar 61 og 6 til Hríseyjar. Frá þessu er greint á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Fyrstu skemmtiferðaskip sumarsins koma til Akureyrar fimmtudaginn 9. maí en það eru skipin MSC Fantasia og Marco Polo. Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur til Akureyrar 30. maí sem er Norwegian Getaway. Skipið er 145.655 brúttólestir með rétt um 4.000 farþega og 1.646 manna áhöfn.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó