KIA

210 í sóttkví á Norðurlandi eystra

210 í sóttkví á Norðurlandi eystra

210 einstaklingar eru nú í sóttkví á Norðurlandi eystra og því hefur einstaklingum í sóttkví á svæðinu fjölgað um 16 frá tölum gærdagsins.

Staðfest smit vegna kórónuveirunnar á Norðurlandi eystra eru enn tvö samkvæmt upplýsingum á covid.is þar sem nýjustu tölur frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra birtust klukkan 11.

Staðfest hafa verið smit á Akureyri og Grenivík. Þá lést ferðamaður sem var smitaður COVID-19 á Húsavík í vikunni en dánarorsök hefur ekki enn verið staðfest.

Á landinu öllu eru staðfest smit nú orðin 473.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.



UMMÆLI