40,000 búin að sjá Lof mér að falla

40,000 búin að sjá Lof mér að falla

Eftir sína fjórðu sýningarhelgi eru rúmlega 40,000 manns búnir að sjá Lof mér að Falla og er hún þar með orðin þriðja vinsælasta mynd ársins og lang tekjuhæsta íslenska mynd á árinu.

Sjá einnig: Netflix sýnir Lof mér að falla áhuga – Verður sýnd um allan heim

Framundan hjá leikstjóra, aðalleikurum og framleiðendum er að fylgja myndinni eftir á kvikmyndahátíðina Busan í S-Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4.-13.október – þetta er Asíu frumsýning myndarinnar.

Sýnishorn myndarinnar:

Söguþráður myndarinnar:

Myndin segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Sambíó

UMMÆLI