46 milljónir króna til Háskólans á Akureyri

46 milljónir króna til Háskólans á Akureyri

Háskólinn á Akureyri hlaut nýverið 46 milljóna króna Erasmus+ styrk sem samstarfsaðili í verkefninu BRIDGES sem snýr að þróun starfsmenntunar á sviði fiskeldis. Um er að ræða samstarfsverkefni Noregs, Ísland, Finnlands og Svíþjóðar og er verkefnið sem hófst formlega þann 1. nóvember síðastliðinn leitt af Norðmönnum.

Um er að ræða svokallað CoVE verkefni (Centres of Vocational Exellence) þar sem fræðsluaðilar í starfsmenntun og fyrirtæki mynda saman þekkingarklasa á völdum sviðum. Hugmyndin er að þátttakendur í klasanum verði síðan leiðandi um menntun og þjónustu á sínu sviði innan Evrópu og veiti öðrum stofnunum, skólum og fyrirtækjum ráðgjöf. Verkefnið í heild sinni var styrkt um fjórar milljónir evra sem gera um 600 milljónir króna og eins og áður segir fær Háskólinn á Akureyri um 46 milljónir íslenskra króna í sinn hlut á næstu fjórum árum.

Mikil aukning hefur verið í fiskeldi á Íslandi og þá sér í lagi í sjókvíaeldi og hafa kröfur um menntun aukist mjög í samræmi við þá aukningu. Á þessu ári er áætluð heildarframleiðsla í laxeldi á Íslandi um 31.500 tonn og verðmæti um það bil 35 milljarðar króna. Helstu hlutverk Háskólans á Akureyri í verkefninu verða að hanna ný verkfæri til miðlunar kennsluefnis og einnig að miðla þekkingu um nýsköpun í sjávarútvegi til verkefnisins og upplýsingum um verkefnið og afrakstur þess til aðila í fiskeldi á Íslandi. Háskólinn á Akureyri kemur einnig að hönnun námsefnis í fiskeldi á háskólastigi og sér um skipulag ráðstefna um nám í fiskeldi þar sem saman munu koma fræðsluaðilar og fyrirtæki í fiskeldi. Þá er fyrirhugað að nýta hugmyndafræði og skipulag Sjávarútvegsskóla unga fólksins sem Sjávarútvegsmiðstöð HA hefur rekið undanfarin ár sem grunn að skipulagi Fiskeldisskóla unga fólksins þar sem ungt fólk á aldrinum 14-20 ára verður frætt um atvinnumöguleika í fiskeldi og sér Háskólinn á Akureyri um að útfæra það og aðstoða við útfærslu hugmyndafræðinnar í samstarfslöndunum.

Þátttaka Háskólans á Akureyri er leidd af Guðrúnu Arndísi Jónsdóttur, forstöðumanni Sjávarútvegsmiðstöðvar HA. Meðal samstarfsaðila innan háskólans má nefna Rannveigu Björnsdóttur, forseta Viðskipta- og raunvísindasviðs, og Auðbjörgu Björnsdóttur, forstöðumann Kennslumiðstöðvar. Aðrir samstarfsaðilar á Íslandi eru Fisktækniskóli Íslands, Háskólinn á Hólum og Arnarlax ehf.

UMMÆLI