56 lið skráð til leiks á Pollamót Þórs


Eins og margir vita hefst 30. Pollamót Þórs og Icelandair á föstudaginn nætkomandi. Í ár er haldið upp á 30 ára afmæli mótsins og verður mótið því afar glæsilegt. Magni Ásgeirsson og hljómsveitin SSSól með Helga Björns í broddi fylkingar munu stíga á stokk svo fátt eitt sé nefnt.

Nú þegar innan við vika er í að flautað verði til leiks eru 56 lið skráð í  þ.e. 38 lið karlaflokki og 18 lið kvenna. Enn er hægt að skrá lið til leiks og fer skráning fram HÉR.

Á laugardagskvöldið verður hið árlega lokaball í Boganum en það er hljómsveitin SS Sól með söngkonuna Sölku Sól með í för sem stígur á stokk. Miðasala á ballið er hafin en hún fer fram í Shell, Hörgárbraut.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó