Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival opnaði í Listasafninu á Akureyri síðastliðinn föstudag. Opnunin var vel sótt en meðal gesta voru listakonurnar Hanna Kortus frá Þýskalandi og Felicia Nilsson frá Svíþjóð sem sýna verk sitt, No Definite Shape á Boreal. Opnunina sótti einnig sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Clara Ganslandt, sem flutti ræðu í tilefni hennar. Boreal stendur yfir til 9. nóvember og fara sýningar fram í Listasafninu á Akureyri, Deiglunni og Mjólkurbúðinni.
Í Listasafninu eru til sýnis tólf vídeódansverk og er nýstárleg framsetning þeirra eitt höfuðeinkenna Boreal. Sýningar í Listasafninu á Akureyri standa yfir til sunnudagsins 9. nóvember og er aðgangur ókeypis. Opið er á Boreal á opnunartíma Listasafnsins.
Næstu helgi, föstudaginn 31. október og laugardaginn 1. nóvember fara fram sýningar í Deiglunni og hefjast þær stundvíslega klukkan 20:00 báða dagana. Sýnd verða þrettán vídeódansverk þessa sýningardaga í Deiglunni frá átta löndum sem öll geta kippt áhorfendum inn í nýja menningarheima á svipstundu.
Listrænn stjórnandi Boreal er dansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios. Meðstjórnendur eru Fríða Karlsdóttir og Jón Haukur Unnarsson.
Fylgjast má með Boreal Screendance Festival á samfélagsmiðlum og heimasíðu verkefnisins:
https://www.instagram.com/boreal_akureyri
https://www.facebook.com/borealakureyri
Mynd með frétt: Sindri Swan


COMMENTS