Affi til liðs við Þórsara

Affi til liðs við Þórsara

Fílbeinsstrendingurinn Yann Emmanuel Affi hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Þórs og mun leika með Þórsliðinu í Lengjudeildinni á komandi leiktíð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins.

Affi sem er 29 ára gamall varnarmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Þór. Hann hefur leikið stærstan hluta ferils síns í Hvíta-Rússlandi en hann kemur til Þórs frá stóru félagi þar í landi, BATE Borisov. Áður lék Affi með Torpedo BelAz, Dynamo Brest og Gomel í Hvíta-Rússlandi og varð bikarmeistari með Gomel 2022.

Affi hefur einnig leikið í Finnlandi þar sem hann lék með FC Oulu í finnsku úrvalsdeildinni árið 2023.

„Við bjóðum Affi velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar,“ segir í tilkynningu Þórsara.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó