Afhenti sveitarstjórn Skútustaðahrepps bréf um umbætur í fráveitumálum

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra afhenti í dag sveitarstjórn Skútustaðahrepps bréf fjármála- og efnahagsráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra um umbætur í fráveitumálum sveitarfélagsins.

Í bréfinu kemur fram að málið hafi verið rætt í ríkisstjórn 28. apríl en þá var lagt fram minnisblað fjármála- og efnahagsráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra um það. Þá hafi ráðherrarnir tveir fundað með forráðamönnum sveitarfélagsins 24. maí sl. þar sem þeir lýstu yfir vilja sínum til þess að ríkið kæmi fjárhagslega og faglega að málinu. Umræður um málið hafi leitt í ljós ríkan velvilja af hálfu ríkisstjórnar og ráðuneyta vegna umbótanna. Verkefnið sé þó nokkuð flókið, bæði verkfræði- og lagalega, og ýmis álitamál uppi sem þurfi að ræða og greiða úr.

Í bréfinu sem sveitarstjórnin fékk afhent í dag segir að þar sem kosningar til Alþingis verða 28. október næstkomandi þyki starfsstjórn ekki rétt að ríkisvaldið fari í viðræður við Skútustaðahrepp fyrr en eftir kosningar og myndun nýrrar ríkisstjórnar, sem mun þá eiga auðveldara um vik að ná niðurstöðu og fylgja eftir ákvörðunum sínum.

„Ráðuneytunum er kunnugt um að sveitarstjórn og aðrir aðilar í Skútustaðahreppi eru undir nokkrum þrýstingi að gefa upplýsingar um fjármögnun fráveitumála, þar á meðal um hugsanlegan hlut ríkisvaldsins. Vonandi verður hægt að fá frest vegna þess í ljósi aðstæðna. Ekki er um bráðavanda að ræða í Mývatni, heldur er unnið að langtímalausn til að tryggja að álag á lífríki vatnsins vegna fráveitna verði sem minnst til frambúðar. Þar skiptir miklu að byggja á góðri greiningu á lausnum sem eru í boði, til þess að tryggja að bestu og hagkvæmustu kostirnir séu valdir. Rétt er að vinna málið eins hratt og auðið er, en þó ljóst að það mun að líkindum taka nokkra mánuði að ná niðurstöðu eftir að viðræður hefjast,“ segir í bréfinu.

Þar segir ennfremur að ráðuneytin telji að um sérstakt viðfangsefni sé að ræða, sem hafi ekki fordæmisgildi varðandi fráveitumál almennt, þar sem Mývatn og Laxá njóta sérstakrar verndar skv. lögum og sveitarstjórn Skútustaðahrepps býr við aðrar og meiri kröfur um hraðar úrbætur í fráveitumálum en önnur sveitarfélög.

„Fjármála- og efnahagsráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið ítreka hér með vilja sinn til að fara yfir málið með sveitarstjórn Skútustaðahrepps og öðrum sem málið varðar á grundvelli laga og reglugerða um fráveitumál og vernd Mývatns og Laxár og almennra sanngirnissjónarmiða,“ segir í bréfi ráðuneytanna.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó