Aflið fær 18 milljónir

Aflið fær 18 milljónir

Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, fær átján milljónir króna framlag úr ríkissjóði til að standa staum af starfsemi sinni.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Sigurbjörg Harðardóttir, verkefnisstjóri Aflsins, undirrituðu samning þess efnis um síðustu helgi.

Á vef ráðuneytisins segir að samningurinn byggi á samþykkt fjárlaganefndar Alþingis og gildi til 31. desember 2020. Meginmarkmið samningsins sé að styrkja Aflið til að standa straum af kostnaði starfseminnar, en hún felst meðal annars í ráðgjöf og stuðningi við þolendur kynferðis- og heimilisofbeldis, forvarnarfræðslu, faglegri ráðgjöf, handleiðslu ráðgjafa og þróunarstarfi.

Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta og Jafnréttisstofu. Undanfarin ár hafa samtökin verið með þjónustusamning við Akureyrarbæ og átt í samvinnu við bæjaryfirvöld sem á móti hafa veitt félaginu afnot af húsnæði í Aðalstræti 14.

„Mikill fjöldi fólks sækist eftir þjónustu Aflsins á ári hverju. Það er sorgleg staðreynd en jafn mikilvægt að tryggja að þolendur geti sótt stuðning og ráðgjöf við hæfi. Sömuleiðis að þeir þurfi ekki að fara um langan veg til að fá þjónustu. Samningurinn tryggir það,“ sagði Ásmundur Einar við undirritunina.

UMMÆLI