Afnema minni- og meirihluta í bæjarstjórn Akureyrarbæjar

Afnema minni- og meirihluta í bæjarstjórn Akureyrarbæjar

Kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn Akureyrarbæjar hafa ákveðið að afnema minni- og meirihluta í bæjarstjórn það sem eftir lifir kjörtímabils. Frá þessu er greint á vef bæjarins.

Þar segir að markmiðið sé að mynda breiða samstöðu vegna sérstakra aðstæðna í kjölfar heimsfaraldurs og í rekstri sveitarfélagsins. Ákvarðanir sem teknar verða munu hafa áhrif á reksturinn til langs tíma og telja kjörnir fulltrúar farsælast á þessum tímapunkti að standa saman að þeim verkefnum sem framundan eru.

„Helsta ástæða þess að bæjarstjórn telur þetta raunhæfan kost er að traust og virðing er til staðar á milli allra kjörinna fulltrúa auk þess sem mikill samhljómur er í grundvallarstefnumálum við núverandi kringumstæður. Samhljómurinn felst í því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins, setja hagsmuni barna og ungmenna í forgang, blása til sóknar á íbúa- og atvinnumarkaði og stefna að því að rekstur sveitarfélagsins verði sjálfbær innan fimm ára. Áfram verður lögð áhersla á gagnrýna umræðu um málefni,“ segir á vef bæjarins.

Haldinn var blaðamannafundur í Hofi nú í hádeginu þar sem bæjarfulltrúar skrifuðu undir nýjan samstarfssáttmála.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó