Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Áfram deilt um sölu áfengis í Hlíðarfjalli

Áfram deilt um sölu áfengis í Hlíðarfjalli

Sölvi Antonsson, veitingamaður, hefur óskað eftir leyfi til að selja áfengi á skíðahótelinu í Hlíðarfjalli og í Strýtuskála. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir að bæjarráð Akureyrarbæjar hafi tekið vel í erindið og hafi verið óskað eftir umsögnum.

Sölvi Antonsson segir í samtali við Morgunblaðið að það að geta fengið sér aðeins í tána ætti að auka á upplifun fólks sem kemur í fjallið. Hann ítrekar að haft yrði eftirlit með því að fólk væri ekki ölvað í skíðabrekkunum.

Sóley Björk Stefánsdóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarráði um hugmyndir um að heimila áfengissölu í Hlíðarfjalli, hefur ekki farið leynt með mótstöðu sína gegn hugmyndinni sem var mikið í umræðunni á síðasta ári. Hún segir andstöðu sína enn vera skýra í viðtali á Vísi.is í dag.

„Satt að segja finnst mér þessi hugmynd alveg út í hött og andstaða mín er alveg skýr,“ segir Sóley og bætir við að sala áfengis í Hlíðarfjalli myndi ganga harðlega gegn forvarnastefnu Akureyrarbæjar.

Sjá einnig: Rekstraraðilar í Hlíðarfjalli biðjast lausnar frá leigusamningi vegna fyrirhugaðara breytinga á vínveitingaleyfi

Sambíó

UMMÆLI