Áfram safnað fyrir kirkju í Grímsey

Áfram safnað fyrir kirkju í Grímsey

Undirbúningur fyrir byggingu nýrrar kirkju í Grímsey er vel á veg kominn. Vinna við hönnun hennar stendur yfir.  Á dögunum skrifaði sóknarnefnd Miðgarðakirkju undir samning við smíðaverkstæðið Loftkastalann um smíði nýrrar kirkju. Þá hefur Hjörleifur Stefánsson arkitekt verið ráðinn byggingarstjóri og Arna Björg Bjarnadóttir verkefnisstjóri Glæðum Grímsey verið fengin til að hafa yfirumsjón með verkefninu. Allir þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa komið að minjavörsluverkefnum og endurgerð gamalla húsa með einum eða öðrum hætti. 

Nýja kirkjan mun hafa augljósa skírskotun til þeirrar eldri en verður aðeins stærri vegna nútíma krafna. Einnig er horft til þess að nýja kirkjan nýtist til fleiri athafna en helgihalds. Áætlað er að smíða hana að hluta til í landi en reisa hana síðan í Grímsey í sumar.

Bygging nýrrar kirkju er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. Þegar hafa safnast fjármunir til byggingar hinnar nýju kirkju og eru eyjaskeggjar afar þakklátir öllum þeim sem verkefninu hafa lagt lið. Þeir standa þó frammi fyrir þeirri áskorun að enn vantar töluvert fjármagn til uppbyggingarinnar.

Þeir sem vilja leggja söfnun fyrir nýrri kirkju lið er bent á reikning Miðgarðakirkju, 565-04-250731, kt. 4602692539.


UMMÆLI