Aftur vann KA Akureyrarslaginn

Aftur vann KA Akureyrarslaginn

KA og Þór mættust í Olís deild karla í handbolta í gær. Leikurinn fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri. Líkt og þegar liðin mættust í bikarkeppninni á dögunum hafði KA betur, í þetta sinn lauk leiknum með 21-19 sigri KA manna.

Áki Eg­il­s­nes var marka­hæst­ur KA-manna með sjö mörk en hjá Þórsur­um var Ihor Kop­is­hinsky marka­hæst­ur með sex mörk. Satchwell varði 12 skot í marki KA en Jov­an Kukobat varði 14 bolta fyr­ir Þórsara.

Eft­ir leik­inn eru KA-menn með 12 stig en Þórsarar eru með fjög­ur stig í næst­neðsta sæti deild­ar­inn­ar.

Mynd: Ka.is/Þórir Tryggva

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó