Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mun taka þátt í Söngvakeppninni 2025 með lagið Eins og þú/Like You. Lagið er samið af Ágústi sjálfum, Hákoni Guðna Hjartarsyni og Halldóri Gunnari Pálssyni.
„Lagið fjallar um þegar þér líður eins og þú hafir unnið í ástar-lottóinu, þú bara trúir ekki að þú fáir að elska manneskjuna þér við hlið . Við Hákon erum mjög ánægðir með að hafa náð að halda sömu skilaboðum í báðum textum. Hvort sem þú hlustar á lagið á ensku eða íslensku þá er tilfiningin sú sama. Að verða ástfanginn og finna þessa þakklætis og sigurtilfinningu er eitthvað sem margir geta tengt við. Þú vilt hvergi annarsstaðar vera og þú finnur og veist að það er “enginn eins og þú” og þau forréttindi að get to love somone like you. Þetta er algjör Eurovision partý sprengja,“ segir Ágúst í samtali við Kaffið.is.
Ágúst segir það vera æskudraumur sem rætist að fá að taka þátt í Söngvakeppninni. Hann hafi heyrt í Hákoni Guðna um leið og hann sá að RÚV opnaði fyrir innsendingar á lögum síðastliðið haust.
„Við höfum verið að vinna saman í að semja tónlist og vorum þá báðir búsettir á Akureyri. Hann átti til demo af svona Eurovision fíling sem við ákváðum að taka alla leið, lagið varð síðan að því sem það er í dag þegar við fengum reynsluboltann og stórkostlega lagahöfundinn hann Halldór Gunnar til liðs við okkur. Hann tók þetta klárlega á næsta stig og sigldi þessu heim með okkur.“

„Ég get ekki lýst því þegar hann Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri keppninar hringdi í mig 13.nóvember nákvæmlega, og óskaði mér til hamingju með að vera kominn inn í Söngvakeppnina. Eurovision og Söngvakeppnin hefur alltaf verið bara í raun rosa stór partur í mínu lífi. Ég og systkini mín, við erum alveg ruglaðir Eurovision aðdáendur og þetta var alltaf heilagur tími þegar ég var að alast upp. Ég t.d. lærði serbneska sigurlagið árið 2007, Molitva, utan að og ég kann það ennþá, erum með ártölin og sigurlögin og þetta helsta alveg allt á lás svo að þetta er bara heldur betur stór draumur að rætast.“
Ágúst er fæddur og uppalinn á Húsavík þar sem Eurovision kvikmyndin The Story of Fire Saga eftir Will Ferrel gerðist að stóru leyti. Ágúst segir að kvikmyndin gæti vel verið byggð á hans lífi, að minnsta kosti byrjunin.
„Við sjáum til hvað gerist á næstu vikum. En þessi mynd er rosalega lík minni æsku, þ.a.e.s. strákur frá Húsavík sem er alltaf spilandi heima á bæjarbarnum og á bæjarhátíðunum, með stóra drauma um að gerast tónlistarmaður og söngvari.“
„Næstu vikur og mánuðir vera rosalega skemmtilegir og spennandi. Ég allavega ætla gera mitt allra besta til að gera Húsavíkinga og Akureyringa þar sem ég er búsettur nú, stoltan af mér og svo vonandi allt Ísland,“ segir Ágúst.
Ágúst skaut tónlistarmyndband fyrir lagið sem mun koma út í kvöld eða á morgun. Hann segist hafa lagt mikinn metnað í myndbandið.
„Það var skotið bæði í Reykjavík og svo einnig heima á Húsavík. Mig langaði að nýta þá tengingu sem Eurovision hefur við heimabæinn minn Húsavík og þá staðreynd að ég var bara á sama stað og hann Lars, (Will Ferrel) og sýna að villtustu handrit geta orðið að veruleika.“
Hægt er að hlusta á lagið Eins og þú/Like You á vef Söngvakeppninnar, songvakeppnin.is.
UMMÆLI